Palestínumenn snúast gegn Hamas

Sú var tíð að Hamas-maðurinn Mosab Hassan Yousef bjó á Vesturbakkanum. Hann lifði sem prins í hlutverki sínu sem, “Sonur Hamas”. Fjölskylda hans taldist konungborin meðal Palestínumanna. Afi hans var vinsæll Imam, og faðir hans var einn af stofnendum Hamas samtakanna. Þrátt fyrir þessa háu stöðu sína innan Hamas, gerðist Yousef svikari við Samtökin. Hann varð leyniþjónustumaður fyrir Shin Bet, Leyniþjónustu Ísraels árið 1996 og lék eftir það tveimur skjöldum.

Í 10 ár gaf hann Ísraelsmönnum upplýsingar um margar fyrirhugaðar hryðjuverkaárásir, sem Samtökin hugðust gera á almenning í Ísrael. Hamas grunaði hann aldrei um að leka upplýsingum, en gengu út frá því að Yousef væri að feta í fótspor föður síns sem leiðtogi innan Samtakanna.

Ákvörðun sína um að snúast gegn Hamas útskýrir hann í endurminningum sínum í bókinni, Sonur Hamas, sem gefin hefur verið út á íslensku. Frásögn bókarinnar hefst árið 1996, þegar hinn 18 ára gamli Yousef var handtekinn af Ísraelsku lögreglunni. Hann segir frá því hvernig hann var pyntaður af Ísraelsmönnum í einni skelfilegustu fangelsisstofnun sem hægt er að ímynda sér. Þar var honum haldið föngnum í þrjá mánuði.

Það sem hann varð þola og aðrir palestínskir fangar af hálfu Ísraelsmanna, var samt léttvægt í samanburði við þá meðferð sem þeir fengu af palestínskum samföngum sínum, ef og þegar þeir voru grunaðir um að hafa veitt Ísraelsmönnum einhverjar upplýsingar. Í fangabúðum Ísraelsmanna, dæmdu leiðandi Hamas-menn aðra fanga til dauða og framfylgdu dómunum þar samstundis, án þess að Ísraelsmenn hefðu af því afskipti.

Þetta kom Yousef til að spyrja sjálfan sig: “Er Ísrael versti óvinurinn? Eigum við ekki verri óvin, sem eru hættulegri en Ísrael, heitir sá ekki Hamas? Er ég sjálfur ekki í óvinaliði þjóðar minnar”?

Önnur ástæða varð einnig til þess að Yousef snérist á sveig með Ísraelsmönnum. Um tíma var hann vistaður í fangaklefa með ísrelskum hermanni, sem fangelsaður hafði verið fyrir að óhlýðnaðist skipun foringja um árás á palestínska uppreisnarmenn. Hermaðurinn var kristinnar trúar, og kvaðst hann elska alla menn, með sama hætti og Jesús Kristur gerir. Í fyrstu fannst Yousef það fáránlegt að nokkur gæti elskað óvini sína. Eðlilegt væri að hata þá. En hann sannfærðist fljótt um að hermaðurinn bæri umhyggju fyrir honum. Öll þessi óumræðilega reynsla sem hann gekk í gegn um, einkum kynnin af kristna hermanninum, varð til þess að hann snérist frá íslam til kristinnar trúar.

Loks þegar hann var látinn laus úr fangavistinni, gerðist hann njósnari Ísraelsmanna. Engan af hans fjölskyldu grunaði hvílík breyting hafði átt sér stað á Yousef. Hann fór að veita innherjaupplýsingar um Hamas til Shin Bet, Leyniþjónustu Ísraels. Hann aðstoðaði þá við handtöku margra Hamas-liða, jafnvel þótt hann hefði andstyggð á aðferðum Ísraelsmanna.

Mosab Hassan Yousef þoldi ekki að gegna þessu tvöfalda hlutverki sínu lengur en í 10 ár. Þá aðstoðuðu Ísraelsmenn hann við að komast frá Vesturbakkanum og til Bandaríkjanna. Nú býr Yousef í Kaliforníu. En draumur hans er að geta einhvern tímann flutt aftur heim.

Síðan hann yfirgaf Vesurbakkan 2004, hefur hann flutt fyrirlestra víðsvegar um heiminn og nú án hvíldar, eftir hryðjuverkaárás Hamas 7. október 2023.

Hann hefur þá talað gegn Samtökunum Hmas, fyrir málstað Ísrael og fjallað um þann rétt sem Gyðingar eiga til landsins. Hann segir: „Ég veit að þetta hljómar ótrúlega á þessari stundu í eyrum margra, en ég elska landið, ég elska fólkið mitt, fjölskyldu mína, sem er þarna, og ég sakna þeirra mjög mikið.

Ég ætla ekki að fara í felur, heldur berjast gegn hatrinu. Ég trúi því að það sé rétt, sem ég er að gera, að vara við illsku Íslam, sem getið hefur af sér Hamas og önnur álíka samtök.

Ef það kostar mig lífið, mun dauði minn ekki verða til einskis."


mbl.is Palestínumenn mótmæla Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump er sannarlega sendiboði Guðs!

Svo segir Drottinn (Jehóva) við sinn smurða, við Kýrus (Donald Trump), sem ég held í hægri höndina á, til þess að leggja að velli þjóðir fyrir augliti hans og spretta belti af lendum konunganna, til þess að opna fyrir honum dyrnar og til þess að borgarhliðin verði eigi lokuð: Ég mun ganga á undan þér (Trump) og jafna hólana, ég mun brjóta eirhliðin og mölva járnslárnar. Ég mun gefa þér hina huldu fjársjóðu og hina fólgnu dýrgripi, svo að þú kannist við, að það er ég, Drottinn, sem kalla þig með nafni þínu (Donald Trump), ég Ísraels Guð.

Vegna þjóns míns Jakobs og vegna Ísraels, míns útvalda, kallaði ég þig með nafni þínu, nefndi þig sæmdarnafni (Forseta Bandríkjanna), þó að þú þekktir mig ekki. Ég er Drottinn og enginn annar. Enginn Guð er til nema ég. Ég hertygjaði þig (Trump), þó að þú þekktir mig ekki, svo að menn skyldu kannast við það bæði í austri og vestri, að enginn er til nema ég.

Ég er Drottinn og enginn annar. Ég tilbý ljósið og framleiði myrkrið, ég veiti heill og veld óhamingju. Ég er Drottinn, sem gjöri allt þetta. Drjúpið, þér himnar, að ofan, og láti skýin réttlæti niður streyma. Jörðin opnist og láti hjálpræði fram spretta og réttlæti blómgast jafnframt. Ég, Drottinn, kem því til vegar. (Jes. 45:1-8).

Ég (Jehóva) er sá sem segi um Kýrus (Donald Trump): Hann er hirðir minn, og hann skal framkvæma allan vilja minn og segja um Jerúsalem: Hún skal endurreist verða og musterið grundvallað að nýju! (Jes. 44:28).

Eins og sjá má hér að ofan þá hef ég breitt nafni Kýrusar í Trump, enda þykkir mér augljóst að spámaðurinn Jesaja er hér að spá fyrir um konunginn Donald Trump.

Trump hefur sannarlega fengið vald frá Guði til að reka út illa anda. Meðal þeirra eru stríðs-guðinn Ares (Mars) og Trans-djöfullinn.

Kolbrún Bergþórsdóttir fjallar í fjölmiðlum um bækur, menn og málefni. Hún gerir það oft ágætleg. En því er ekki nú að heilsa, þegar hún fjallar um Donald Trump, forseta Bandríkjanna. En umsögn hennar um hann birtist á dv.is 17. mars s.l. Hún vill gefa honum einkunnina: Hryllilegur djöfull. En sjálf virðist hún haldin hinum djöfullega woke-anda og vill fylgja Trans-djöflinum.

Hún fjallar um Trump á svipuðum nótum, og fræðimennirnir gerðu um Jesú Krist, er þeir kölluðu hann Beelsebúl: Maður verður að þekkja illskuna þegar maður sér hana.

Svar Jesú til fræðimannanna og til Kolbrúnar er þetta: En reki ég illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar. En ef ég rek illu andana út með fingri Guðs, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið. (Lúk. 11:19-20).

Með valdatöku Trumps er fingur Guðs að verki. Í einni sviphendingu hefur Trump sannarlega raskað framgangi ríkis Antikrists í veröldinni. Nú í dag með takmörkuðu vopnahléi við Rússa, fyrir hönd Úkraínu.

Höldum því stöðugt áfram að biðja Faðirvorið, og segja við Guð: Til (vor) komi þitt ríki, Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.


mbl.is Samþykkja að láta af loftárásum á orkuinnviði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 427
  • Frá upphafi: 10533

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 392
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband