Færsluflokkur: Bloggar
23.9.2024 | 19:21
Sorg þín ristir djúpt, kona, sem myrt hefir ófætt barn þitt!
Muntu geta fyrirgefið sjálfri þér ódæði? Nei, aldrei án hjálpar frá Guði almáttugum.
Getur barnið sem þú, mamma þess, lést drepa fyrirgefa þér?
Barnið eins og öll börn, elskar þig, mömmu sína, þrátt fyrir allt.
Ef þú biður Guð af öllu hjarta að fyrirgefa þér þessa miklu synd, þá mun Hann gera það. Og Hann mun koma því til leiðar að barnið þitt geri það líka í eilífðinni.
Aðeins þannig getur þú eignast frið í sál þína þann stutta tíma sem þú átt eftir á lifa hér á þessari jörð.
_______________________
Guð, sá sem skapað hefur himinn og jörð, hefur einnig skapað mann í móðulífi þínu, kona, sem ert barnshafandi. Láttu ekki Anda heimsins telja þér trú um að það sé þinn réttur að fyrirfara barninu. Að barnsfæðingin muni færa úr skorðum væntingar þínar og framtíðaráætlanir.
Þú hefur þegar myndað ákveðin tengsl við barnið og það skynjar það ef þú ert að hugleiða að tortíma lífi þess.
Og þetta eru þau orð sem ófætt barnið þitt vill segja við þig: Elsku mamma mín leyfðu mér að lifa!
![]() |
Þungunarrof eftir heimsleika: Tók mér langan tíma í að syrgja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudaginn 18. september s.l. samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna með atkvæðagreiðslu ályktun gegn Ísrael, sem sýnir okkur hvílíkt gyðingahatur grasserar í heiminum.
Í ályktuninni er þess krafist að Ísrael "bindi tafarlaust enda á ólöglega veru sína" á hernumdu svæðum Palestínumanna og fari burt innan 12 mánaða.
Öll þessi svæði sem um er rætt, hefur Ísrael hernumið þegar á þá var ráðist. En þeir geta ekki skilað svæðunum vegna öryggis síns. Með því að afhenda svæðin óvinum sínum aftur, gefa þeir færi á sér til nýrra árása.
Ýmsum öðrum svæðum sem Ísrael hefur hertekið hafa þeir reyndar skilað, Sinaiskaga skiluðu þeir aftur til Egypta. En illu heilli, eins og nú hefur komið á daginn, yfirgáfu Ísraelsmenn norðurhluta Gaza-svæðisins sumarið 2005. Ariel Sharon var þá forsætisráðherra Ísraels og vildi sýna friðarviðleitni, sem nú hefur leitt til enn meiri ófriðar.
Alsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er því með ályktun sinni í raun að skipa Ísraelsmönnum að leggja niður Ríkið Ísrael.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar varð sú, að 124 ríki fylgja Antikristi og samþykktu ályktunina og kölluðu þar með yfir sig bölvun Guðs. Og því miður þar á meðal Íslenska ríkið.
Á móti voru 14 ríki: Argentína, Tékkland, Fitji, Ungverjaland, Ísrael, Malaví, Micronesia, Nauru, Palau, Papúa Nýja Guinea, Paraguay, Tonga, Túvalú og Bandaríki Norður-Ameríku.
Hjá sátu 43 ríki.
Ástæða er til að biðja þeim ríkjum sérstakrar blessunar sem greiddu atkvæði gegn þessari fjandsamlegu ályktun Allsherjarþingsins.
Gleymum ekki að biðja stöðugt fyrir Ísrael.
![]() |
Að kalla okkur gyðingahatara er náttúrulega bara áróður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.9.2024 | 21:59
Samherji, til hamingju!
Ég óska Samherja til hamingju með Íslensku sjávarútvegsverðlaunin, sem hann hlaut í gærkvöld.
Við verðlaunaafhendinguna fékk fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík þá einkunn að ver eitt það fullkomnasta í heimi.
Við megum vera stolt af árangri þessa merkilega sjávarútvegsfyrirtækis okkar og fögnum því að nú fær RÚV tækifæri til yfirbótar í umfjöllun sinni um fyrirtækið á jákvæðum nótum eins og Samherji á skilið.
![]() |
Samherji hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2024 | 20:14
Ljúgvottar vara við lygi
Eitt boðorðanna tíu hljómar svona:
Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
Þess vegna stendur í íslenskum lögum: Sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum.
Falsfréttamiðlar í Bandaríkjunum og Íslandi hafa stanslausar flutt lygar um Donald Trump í níu ár. Nú kvarta þeir undan lygafréttum um Kamala Harris.
Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann, en fundu eigi. Margir báru þó ljúgvitni gegn honum, en framburði þeirra bar ekki saman. (Mk. 14:55-56).
![]() |
Rússar dreifa falsfréttum um Harris |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Adam lét ekki tælast, heldur lét konan tælast og gjörðist brotleg. En hún mun hólpin verða, sakir barnburðarins, ef hún stendur stöðug í trú, kærleika og helgun, samfara hóglæti.
(1. Tím. 2:14-15).
![]() |
Karlar á fimmtugsaldri líklegastir til að kjósa Trump |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Engin vopn, sem smíðuð verða móti þér (Trump), skulu verða sigurvænleg, og allar tungur, sem upp rísa gegn þér til málaferla, skalt þú kveða niður. Þetta er hlutskipti þjóna Jehóva og það réttlæti, er þeir fá hjá mér segir Jehóva. (Jes. 54:17).
![]() |
Trump virðist hafa verið sýnt banatilræði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.9.2024 | 21:02
Geturðu fengið af þér að láta taka ófætt barn þitt af lífi?
Barnið þitt sem hrópar í móðurlífi þínu: Mamma mín má ég lifa? Guð leyfði getnað minn, og ætlaði mér að lifa. Miskunna þú mér. Elsku mamma mín! Deyddu mig ekki!
![]() |
46 konum neitað um þungunarrof |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2024 | 23:43
Donald Trump aðalefni falsfrétta í níu ár hjá meginstraumsfjölmiðlum
Hvorki eru stærstu fjölmiðlar hér á landi né í Bandaríkjum Norður-Ameríku marktækir í umfjöllun sinni um Donald Trump. Hið sama á reyndar við um flest sem lýtur að pólitík og stríðsátökum.
Almenningur í Bandaríkjunum hefur fyrir löngu gert sér fulla grein fyrir hvernig fréttaflutningi í þeirra landi er háttað, en ekki er sama hægt að segja um Íslendinga.
Síðustu daga hef ég skammast mín fyrir að vera hluti af þessari dómgreindarlausu þjóð, Íslendingum, sem meðtaka fréttir gagnrýnislaust, m.a. af frammistöðu Donalds Trump í kappræðum frambjóðenda til forsetakjörs í Bandaríkjunum, sem fram fara 5. nóvember n.k.
![]() |
Útilokar aðrar kappræður við Harris |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2024 | 16:08
Trump er útvalinn af Guði til að undirbúa komu Ísraels konungs!
Ísraelsríki er lykillinn að framtíð heimsins.
Svo segir Ísraels Guð: "Ég mun ganga á undan þér (Donald Trump) og jafna hólana, ég mun brjóta eirhliðin og mölva járnslárnar. Ég mun gefa þér hina huldu fjársjóðu og hina fólgnu dýrgripi, svo að þú kannist við, að það er ég, Jehóva, sem kalla þig með nafni þínu (Donald Trump), ég Ísraels Guð. Vegna þjóns míns Jakobs og vegna Ísraels, míns útvalda, kallaði ég þig með nafni þínu, nefndi þig sæmdarnafni (Forseta Bandríkjanna), þó að þú þekktir mig ekki." (Jes. 45:2-4).
Donald Trump segir Ísraelsríki muni þurrkast út innan tveggja ára verði Kamala Harris Forseti Bandaríkjanna.
Án Ísraels á Heimurinn enga framtíð.
Svo segir Orð Guðs um komandi konung Ísraels: "Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn, (Jesús Kristur). Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn hans skal kallað Undraráðgjafi, Guðhetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi. Mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka á hásæti Davíðs og í ríki hans (Ísrael). Hann mun reisa það og efla með réttvísi og réttlæti héðan í frá og að eilífu. Vandlæting Drottins allsherjar mun þessu til vegar koma." (Jes. 9:6-7).
![]() |
Trump kom fréttamönnum á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2024 | 19:05
Guð vill ekki að þú deyir
Því svo elskaði Guð heiminn (þig), að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver (þú) sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóh. 3:16).
Nýr biskup Þjóðkirkjunnar, Guðrún Karls Helgudóttir lagði áherslu á orðið upprisa í ræðu sinni, eftir að hafa verið vígð sem Biskup Íslands 1. september. Hún talaði um upprisu í merkingunni, afturhvarf, endurnýjun, eða nýja betri tilveru.
Kristindómurinn snýst eingöngu um að dauðir muni upp rísa fyrir trú á Jesú Krist. Fyrir 2000 árum verður Kirkja Krist til vegna þessarar trúar. Þetta er innihald Fagnaðarerindisins sem Jesús kenndi og framkvæmdi.
Það er Guð sem ræður yfir lífi okkar og dauða, þótt svo virðist vera að Djöfullinn geti stigið fram hvenær sem er og tortímt okkur, en hann hefur ekki síðasta orðið.
Jesús segir við hana: Bróðir þinn mun upp rísa. Marta segir: Ég veit að hann rís upp í upprisunni á efsta degi. Jesús mælti: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu? (Jóh. 11:23-26).
Jesús tók hönd barnsins og sagði: Talíþa kúm! Það þýðir: Stúlka litla, ég segi þér, rís upp! Jafnskjótt reis stúlkan upp og fór að ganga um, en hún var tólf ára. Og menn urðu frá sér numdir af undrun. (Mk. 5:41-42).
![]() |
Á ekki að gerast í okkar samfélagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 64
- Frá upphafi: 11516
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 50
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar