Færsluflokkur: Bloggar

Ísraelsku ólympíufararnir halda nú sigurreifir heim frá Frakklandi

 

Við upphaf þessa Ólympíuleika, fengu Ísraelskir íþróttamenn líflátshótanir og voru myntir á hvernig fór fyrir löndum þeirra á Ólympíuleikunum 1972.

En þeir halda nú fagnandi heim frá Frakklandi með sigurbros á vör og sjö verðlaunaviðurkenningar.

Þetta er besti árangur sem Ísrael hefur nokkurn tíman náð á Ólupíuleikunum.

 “Sjá, ég (Ísraels Guð) skapa smiðinn, sem blæs að kolaeldinum og framleiðir vopnið til sinnar notkunar, og ég skapa eyðandann til þess að leggja í eyði.

Engin vopn, sem smíðuð verða móti þér (Ísrael), skulu verða sigurvænleg, og allar tungur, sem upp rísa gegn þér til málaferla, skalt þú kveða niður. Þetta er hlutskipti þjóna Drottins og það réttlæti, er þeir fá hjá mér segir Drottinn.” (Jes. 54:16-17).


mbl.is Myndir: Lokahátíð Ólympíuleikanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðiganga með Jesú færir okkur fullkominn fögnuð

En þegar við göngum gegn Jesú köllum við yfir okkur tortímingu.

Jesús sagði:

“Og þú Kapernaum (Reykjavík). Verður þú hafin til himins?

Nei, til heljar mun þér steypt verða.

Ef gjörst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gjörðust í þér, þá stæði hún enn í dag.

En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér (Reykjavík).” (Mt. 11:23-24).


mbl.is Myndir: Gleðigangan 2024
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Donald Trump er ekki lengur bara frambjóðandi, hann er orðinn leiðtogi Bandarísku þjóðarinnar með náðargjöf.

Tucker Carlson segir að Guð almáttugur hafi gripið inn í atburðarrásina við skotárásina á Donald Trump 13. Júlí s.l.

Eftir að skotin riðu af reis Trump á fætur blóðugur, en með hnefann á lofti, til að gefa til kynna að enga uppgjöf væri að finna hjá honum heldur, þvert á móti.

Sannarlega opinberaði Guð sig þarna, verndaði Donald Trump og ítrekaði útvalningu hans.

Trump breyttist sjálfur á þessu augnarbliki og er ekki lengur bara frambjóðandi til embættis forseta og fyrrum forseti. Hann er orðinn miklu meira.

Bandaríska þjóðin breyttist sömuleiðis á þeirri stundu, eins og hendi væri veifað í samhenta þjóð með leiðtoga og markvið.

Leiðtogi er ekki bara maður með titil, heldur maður sem hlotið hefur eldskírn, og tekið við náðargjöf. Þessa náðargjöf hefur Guð nú úthlutað Donald Trump ómælt.

Sannur leiðtoginn hefur meiri djörfung en nokkur af fylgismönnum hans. Það hefur Donald Trump, og það sýndi sig þegar á reyndi. Þegar skotárásinn á Trump átti sér stað á kosningarfundi hans, fylltist fólkið sömu djörfung og Trump sjálfur.

Svo segir Drottinn (Jehóva) við sinn smurða, við Kýrus (Donald Trump), sem ég held í hægri höndina á, til þess að leggja að velli þjóðir fyrir augliti hans og spretta belti af lendum konunganna, til þess að opna fyrir honum dyrnar og til þess að borgarhliðin verði eigi lokuð: Ég mun ganga á undan þér (Trump) og jafna hólana, ég mun brjóta eirhliðin og mölva járnslárnar. Ég mun gefa þér hina huldu fjársjóðu og hina fólgnu dýrgripi, svo að þú kannist við, að það er ég, Drottinn, sem kalla þig með nafni þínu (Donald Trump), ég Ísraels Guð. Vegna þjóns míns Jakobs og vegna Ísraels, míns útvalda, kallaði ég þig með nafni þínu, nefndi þig sæmdarnafni (Forseta Bandríkjanna), þó að þú þekktir mig ekki. (Jes. 45:1-4).


mbl.is „Svo ég veit ekki, er hún indversk eða svört?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra Ísraels, Netanjahú biður fyrir Trump

Ég (Jehóva) er sá sem segi um Kýrus (Donald Trump): Hann er hirðir minn, og hann skal framkvæma allan vilja minn og segja um Jerúsalem: Hún skal endurreist verða og musterið grundvallað að nýju! (Jes. 44:28).


mbl.is Netanjahú biður fyrir Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðarljós lyginnar?

Nú virðumst við, Íslensk Þjóð vera komin á þann stað að við elskum ekki lengur Sannleikann, heldur lygina og í stað Kærleika veljum illsku.

Við höfum fylgt liði með Ný-marxistum og útrýmt hinu góða, fagra og fullkomna, boðskap Kristindómsins, úr grunnskólunum.

Við höfnum Lífinu, en veljum dauðann. Drepum ófædd börn okkar í þúsundatali og viljum jafnvel  drepa fleiri.

Allt bendir til að brátt verði samþykkt lög sem leyfa, að veiku og gömlu fólki verði styttur aldur með dánaraðstoð.

Við höfum sett lög um kynfrelsi í uppreisn við Guð Skaparann. Völdum kvenbiskup, sem fer gegn Orði Guðs og köllum það frelsi.

Hvernig veljum við Forseta?


mbl.is Katrín efst í nýrri könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningaúrslit eru yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana. En hvaða kannana?

Þær kannanir sem gera því skóna að Þjóðin sé taglhnýtingur hins alþjóðlega auðvalds eru vægast sagt umdeildar, en þær koma frá Gallup, Maskínu og Prósent.

Skoðanakannanir Fréttatímans og Útvarps Sögu sýna allt aðrar niðurstöðu, þær sýna að Arnar Þór Jónsson verður sigurvegari kosninganna.

En mælirinn er ekki fullur fyrr en á laugardag.

Íslenska þjóðin hefur verið hálf utan við sig síðustu 10 árin. En ég trúi því að hún komist nú til sjálfs sín líkt og hún gerði í Icesave málinu.

Hnúturinn sem hefur haldið henni bundinni við tagl Trójuhestsins er að losna. Þessi vika mun skera úr, hvort hnútinn losni.

Kjósi Þjóðin Arnar Þór Jónsson sem Forseta sinn, falla af henni margir fjötrar.


mbl.is Þrjár efstu hnífjafnar með rúm 20% inn í lokavikuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdakerfið hefur engan rétt til að kjósa. Fólk kýs Forseta Íslands.

Ég er mikill trúmaður, trúi bókstaflega Orðum Ritningarinnar, öllu því sem hún segir um frelsara okkar Jesú Krist, það sem Hann sagði og gerði.

En ég heyri oft töluð, og sé skrifuð orð, sem birtast í fjölmiðlum, sem ég trúi alls ekki, vegna þess að þau stríða á móti allri skynsemi, jafnvel þótt sum þeirra séu tilvitnanir í svokallaða sérfræðinga.

Niðurstöðum skoðanakannana, sem Meginstraumsfjölmiðlarnir eru öðru hvoru að birta, hef ég enga trú á að séu réttar, enda hafa þessir miðlar misst trúverðugleika sinn vegna falsfrétta sem þeir flytja okkur stöðugt nú um stundir, flestum er þetta ljóst.

Þess kannanir stangast algjörlega á við “Orðið á götunni” eins og DV myndi orða það. Almenningur á Íslandi lætur ekki Valdaelítuna draga sig á asnaeyrunum með þeim niðurstöðum sem þessar svokölluðu kannanir sýna.

Arnar Þór Jónsson hefur til dæmis örugglega margfalt meira fylgi en niðurstöður kannana Meginstraumsfjölmiðlana sýna.

Þegar skoðaðar eru þær kannanir sem farið hafa fram á Útvarpi Sögu birt 8. apríl og Fréttinni sem gerð var daganna 9.- 16. maí. er Arnar Þór með langmesta fylgið, í báðum tilfellum yfir 50% fylgi.

Hann er einnig sá frambjóðandi sem ég kýs sjálfur og flestir í kring um mig.


mbl.is Frambjóðendur svara: Arnar Þór Jónsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við kjósendur erum færir um að greina réttlæti frá ranglæti

Jón Steinar Guðlaugsson fjallar um stigagjöf í nýaflokinni Eruovision sönglagakeppni 11. maí s. l. Jón Steinar hefur sýnt fram á að ef almenningur í þátttökulöndunum, hefði ráðið úrslitum við kosningu sigurlagsins hefði annað lag borið sigur úr bítum.

Það voru hins vegar atkvæði dómnefnda aðildarlandanna sem réðu því hvaða lag vann. Þessar dómnefndir höfðu verið valdar af valdaelítum landanna.

Nú veljum við, almenningur á Íslandi, okkur nýjan forseta, án þess að valdaelítan geti beinlínis stjórnað atkvæðagreiðslunni. En hún reynir samt allt hvað af tekur að stjórn því hvernig við greiðum atkvæði.

Valdaelítan vill ekki réttlátan forseta, sem ber hag þjóðarinnar fyrir brjósti. Hún vill forseta sem tryggir áframhaldandi rangláta stjórn þeirra.

Takið eftir hvernig skoðanakannanir eru framkvæmdar, þeim er stjórnað af elítunni.

Takið eftir hvernig, og um hvaða frambjóðendur, er helst fjallað af meginstraumsfjölmiðlunum, einnig því er stjórnað af elítunni.

En ég trúi því að þjóðin láti ekki valdaelítuna afvegaleiða sig til að kjósa ranglátan frambjóðanda í embætti Forseta Íslands.

“Andstyggð réttlátra er sá sem ranglæti fremur

og andstyggð ranglátra sá sem breytir ráðvandlega. (Ok. 29:27).”

 


mbl.is Arnar Þór hvergi nærri hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland, Hera Björk, í síðasta sæti. - Samt sannkallaður sigurvegari.

Vegna þess, að Hera Björk Þórhallsdóttir ÁKVAÐ fyrir Íslands hönd að við skyldum vera þátttakendur í Euróvision í ár, er hún sigurvegari.

Með ákvörðun sinni kom hún því til leiðar að Íslendingar gátu greitt lagi Ísraels verðskulduð 8 stig, og verið Ísrael þannig blessun á erfiðum tíma þjóðarinnar.

Hera Björk hafði sjálf tjáð sig í viðtali við Ísraelskan miðil í apríl, að hún væri hrifin af framlagi þeirra, laginu Hurricane sem var í flutningi Eden Golan.

“Jesús sagði við þá:

Sannlega segi ég yður: Þegar allt er orðið endurfætt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu, munuð þér, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.(Ekki bara 8 stig).

Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá margfalt aftur og öðlast eilíft líf.

En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.” (Matt. 19:28-30).


mbl.is Ísland lenti í síðasta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá ekki komið tækifæri aftur fyrir Ísland, fyrir hetjuna okkar Heru Björk að hlaupa í skarðið?

Er ekki tilvalið að fá Ísland til að leysa Holland af í kvöld?

Hera Björk Þórhallsdóttir stóð sig frábærlega í undankeppni Euróvision á þriðjudag. Þótti mér hennar flutningur þá sá langbesti og skil ekki hví hún var ekki valin til að vera með á lokakvöldinu.

Þótt framlag hennar komi ekki til góða fyrir Ísland, var það til blessunar fyrir Ísrael. Hera Björk hafði þá djörfung að lýsa skoðun sinni á framlagi Ísraels þegar hún var innt eftir henni af Ísraelska Eurovision-miðlinum Euromix 3. apríl s. l., enda þótt henni mætti vera ljóst að RÉTT-TRÚNAÐARLIÐIÐ, GÓÐA-FÓLKIÐ, hérna heima tæki hreinskilni hennar óstyngt upp, sem og kom á daginn þegar þetta GÓÐA-FÓLK hélt sérstaka andstöðutónleikar gegn Heru Björk og Ísrael.

Hún sagði nákvæmlega það sem henni finnst um lag Ísraelsmanna í viðtalinu, að hún væri hrifin af framlagi þeirra, laginu Hurricane sem er í flutningi Eden Golan.

Hera Björk notaði þá tækifærið til að þakka Ísraelskum Euróvision stuðningsmönnum sínum stuðninginn, um leið og hún óskaði þeim velfarnaðar.

Með þessu hefur Hera Björk blessað Ísrael, (þó ekki endilega allt sem þeir gera), en Guð Ísraels hefur lofað að blessa þá sem blessa Ísrael. Sú blessun kemur til baka til Heru Bjarkar.


mbl.is Hollandi vísað úr Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 183
  • Frá upphafi: 12165

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 129
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband