26.11.2024 | 18:19
Himnaríki læst fyrir grunnskólabörnum!
Jesús sagði: "Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér læsið himnaríki fyrir mönnum. Sjálfir gangið þér ekki þar inn, og þeim, sem inn vilja ganga, leyfið þér eigi inn að komast. (Mt. 23:13).
Kristinfræðikennsla bönnuð í grunnskólum, var fyrirsögn greinar á vef Útvarps Sögu í dag, 26. nóvember 2024, ritað af ritstjórn.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra sem var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í Síðdegisútvarpinu ræddi í þættinum meðal annars um stöðu kristinfræði í skólum eins og hún var áður fyrr.
Arnþrúður hóf umræðuna á því að rifja upp að á árinu 2008, skömmu fyrir bankahrunið, hafi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þáverandi menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins staðið fyrir lagabreytingu sem bannaði Kristinfræðikennslu í grunnskólum landsins.
Hún spurði Ásmund Einar af hverju hann hefði látið það viðgangast að sérstök kennsla í kristinfræði hafi verið lögð til hliðar.
Ásmundur svaraði því til að samfélagið væri að breytast og skólastarf þyrfti að laga sig að fjölbreytni sem eðlilega fylgir fjölmenningar samfélagi. Hann sagðist þó vera meðvitaður um mikilvægi þess að halda í menningararfinn.
Ásmundur: Styð að við bætum kjör og aðbúnað kennara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 26. nóvember 2024
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar