20.5.2024 | 22:15
Valdakerfið hefur engan rétt til að kjósa. Fólk kýs Forseta Íslands.
Ég er mikill trúmaður, trúi bókstaflega Orðum Ritningarinnar, öllu því sem hún segir um frelsara okkar Jesú Krist, það sem Hann sagði og gerði.
En ég heyri oft töluð, og sé skrifuð orð, sem birtast í fjölmiðlum, sem ég trúi alls ekki, vegna þess að þau stríða á móti allri skynsemi, jafnvel þótt sum þeirra séu tilvitnanir í svokallaða sérfræðinga.
Niðurstöðum skoðanakannana, sem Meginstraumsfjölmiðlarnir eru öðru hvoru að birta, hef ég enga trú á að séu réttar, enda hafa þessir miðlar misst trúverðugleika sinn vegna falsfrétta sem þeir flytja okkur stöðugt nú um stundir, flestum er þetta ljóst.
Þess kannanir stangast algjörlega á við Orðið á götunni eins og DV myndi orða það. Almenningur á Íslandi lætur ekki Valdaelítuna draga sig á asnaeyrunum með þeim niðurstöðum sem þessar svokölluðu kannanir sýna.
Arnar Þór Jónsson hefur til dæmis örugglega margfalt meira fylgi en niðurstöður kannana Meginstraumsfjölmiðlana sýna.
Þegar skoðaðar eru þær kannanir sem farið hafa fram á Útvarpi Sögu birt 8. apríl og Fréttinni sem gerð var daganna 9.- 16. maí. er Arnar Þór með langmesta fylgið, í báðum tilfellum yfir 50% fylgi.
Hann er einnig sá frambjóðandi sem ég kýs sjálfur og flestir í kring um mig.
![]() |
Frambjóðendur svara: Arnar Þór Jónsson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 20. maí 2024
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar