10.6.2025 | 19:36
Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks - Misst vitið - Er í fjötrum lyga - En hvað um þig?
Ég trúi því sem ég vilt trúa. Er trú mín leidd af anda sannleikans eða stjórnast hún af anda vitfirrtrar lygi?
Á YouTube-myndbandi flytur nú Breski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Melanie Phillips tölu um lygarnar gegn Ísrael, sem stýra nú orðum og æði flestra leiðtoga Heimsins. (https://www.youtube.com/watch?v=xixp7mV8f-0).
Hún skorar á heimsbyggðina að snúa sér frá þeirri stórhættulegu lygi sem tröllríður flestum fjölmiðlum veraldar. Hún afhjúpar hvernig alþjóðlegir fjölmiðlar, mannúðarsamtök og stjórnmálastofnanir eru samsekir í að dreifa ósannindum um stríðið á Gaza, milli Hamas og Ísrael.
Þess vegna er ofbeldi gegn Gyðingum að aukast jafn og þétt þessa daga á Vesturlöndum. Fyrir fáum dögum var framin í Boulder eldsprengjuárás á mótmælafund hliðhollum Ísrael, og fyrir tveimur vikum var ungt Gyðingapar drepið í Washington D.C.
Um 500 þúsund Gyðingar búa í Frakklandi. En á síðustu mánuðum hafa ofsóknir á hendur þeim aukist svo að margir kjósa nú að hverfa burt þaðan og setjast að í Ísrael.
Phillips spyr þeirrar spurningar, sem fáir þora að horfast í augu við og svara: Hvað ef allur heimurinn trúir lyginni?
Á myndbandinu fjallar Melanie Phillips um það sem kallast fréttir frá Gaza, en er mest megnis tilbúningur þ.e.a.s. lygi. Þessar Gróusögur eru fluttar daglega á fréttamiðlum eins og BBC, New York Times, Sky News, RÚV, mbl.is og sumar koma jafnvel frá alþjóðlegum stofnunum eins og Rauða krossinum, Amnesty International, SÞ og Læknum án landamæra.
Phillips afhjúpar hvernig falsfréttir eru stöðugt sagðar af fjöldamorðum Ísraelshers á Palestínumönnum. Það nýjasta eru morðin sem Hamasliðar fremja á eigin fólki við dreifingarmiðstöð hjálpargagna. Ísraelsmenn eru ákærðir fyrir þau.
Hún segir frá því hvernig Hamas notar erlenda lækna til að dreifa rangfærslum og hvernig stórir fjölmiðlar hafa vísvitandi endaskipti á sannleika og lygi.
Samræmt, skipulegt áróðursstríð er í gangi gegn Ísrael. Ekki er eingöngu við fjölmiðla að sakast, því leiðtogar heimsins virðast nú flestir hafa ákveðið að stofna Gyðingum í hættu hvar sem þeir eru og stuðla að eyðingu ríkis Ísraels.
Vegna þessarar stefnu eru hryðjuverkamenn um víða veröld að styrkjast, þetta flýtir einnig mjög fyrir hnignun Vestrænnar siðmenningar.
Næst verða það börnin okkar.
Jafnvel á Íslandi er að finna ótrúlegan lygaáróður gegn Gyðingum og Ísrael. Hér heima setur, Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks, fram forkastanlegar lygar um Ísrael, í nýlegri færslu á Facebook. Færslan birtist einnig í Mannlíf. Frásögn hans er ekki einu sinni til þess fallin að Gyðinghatarar trúi henni, hvað þá aðrir.
En í þessum skrifum fordæmir Kristinn harðlega stefnu Ísraelsríkis í garð Palestínumanna. Hann heldur því fram að meginhluti Ísraelmanna séu öfgamenn sem vilji útrýma Palestínumönnum.
Hér er hlutunum snúið á hvolf eins og frekast unnt, þar sem opinber stefna Hamas er: Öllum Gyðingum skal útrýmt í þjóðarmorði. Út á þetta gengur slagorð þeirra: Free Palestine og "From the river to the sea".
Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður þó illska þess opinber á dómþinginu. Sá sem grefur gröf, fellur í hana. (Orðskv. 26:26-27).
Ísraelar hafa misst vitið," skrifar Kristinn.
Hann vísar þar til einhvers sem hann kallar nýja skoðunarkönnun, sem hafi verið gerð á vegum Penn State-háskóla í Bandaríkjunum og sýni að 82% Gyðinga í Ísrael styðji algera útrýmingu Palestínumanna á Gaza, lifandi eða dauðum. Um 47% styðji jafnframt þjóðarmorð með beinni slátrun allra íbúa svæðisins.
Allur heimurinn veit hins vegar að þjóðarmorð Hamas á Gyðingum hófst 7. október 2023.
![]() |
Guardiola: Næst verða þetta börnin okkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 10. júní 2025
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 196
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 159
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar