8.6.2025 | 00:16
Ísrael - Sæmdarheiti - Þjóðar og Lands
Jakob sagði: Ég sleppi þér ekki Guð, nema þú blessir mig.
Þá sagði Guð við hann: Hvað heitir þú? Hann svaraði: Jakob.
Þá mælti Guð: Eigi skalt þú lengur Jakob heita, heldur Ísrael, því að þú hefir glímt við Guð og menn og fengið sigur. (1. Mós. 32:26-28).
Hlýð þú á, Jakob, þjónn minn,
og Ísrael sem ég hef útvalið.
Svo segir Drottinn sem skapaði þig,
mótaði þig í móðurlífi og hjálpar þér:
Óttast ekki, Jakob, þjónn minn,
Jesjúrún sem ég hef útvalið.
Því að ég helli vatni yfir hið þyrsta land
og veiti ám um þurrlendið.
Ég úthelli anda mínum yfir niðja þína
og blessun minni yfir börn þín.
Þau munu dafna eins og sef við vatn,
eins og pílviðir á lækjarbökkum.
Eitt þeirra mun segja: Ég heyri Drottni til,
annað mun nefna sig nafni Jakobs,
enn annað rita á hönd sér: Eign Drottins,
og taka sér sæmdarheitið Ísrael. (Jes. 44:1-5).
![]() |
Þýskaland mun halda áfram að styðja Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 8. júní 2025
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 9
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 11488
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar