31.10.2024 | 23:11
Hrekkjavaka skemmtir Skrattanum þegar hann lætur börnin finna fyrir nærveru Helvítis
Hrekkjavaka er sannkölluð hátíð Djöfulsins og alls þess sem er illt og ógnvekjandi. Hann hefur nú lokið við að útbreiða hátíð sína um gjörvallan heim. Þetta mun vera eina alþjóðlega hátíð ársins þar sem börn og fullorðnir eru hvattir til þess að fara í hlutverk draugs, varúlfs eða vampíru og það er gert spennandi.
En í raun er Djöfullinn að ljúga að börnum og fullorðnum um að Myrkraríki hans sé eftirsóknarvert. Hrekkjavakan er blekkingaraðferð Andskotans til að fjötra okkur niður í ríki sínu, í Helvíti, þar sem að eilífu er grátur og gnístran tanna.
Biblían segir okkur að Jesús hafi komið til jarðarinnar til að frelsa okkur frá valdi myrkursins og flytja okkur inn í ríki Guðs sonar, Himnaríki. Tökum þess vegna aldrei þátt í Hrekkjavöku, en tökum við frelsinu í Jesú Kristi og eignumst hlutdeild í Himnaríki, þar sem er kærleikur, gleði og friður.
Hrekkjavökubúningurinn huldi ekki mikið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.11.): 4
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 246
- Frá upphafi: 7110
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 210
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning