Djúpríkið hrósar ekki sigri – Ríki fólksins sigrar

Nú lítur út fyrir að Katrín Jakobsdóttir, hljóti valdameira alþjóðlegt embætti á vegum Djúpríkisins en hún hafði sem forsætisráðherra Íslands. Hún mun ekki aðeins fara gegn almenningi á Íslandi eins og hún hefur gert, heldur einnig gegn borgurum fjölda þjóða.

Þetta blasir við öllum almenningi, en fæstir hafa kjark til að halda uppi andófi.

En það gerir Arnar Þór Jónsson, sem sýndi þá djörfung að benda á athafnir Djúpríkisins í þættinum Spursmál nýlega, enda þótt hann mætti vita að margir erindrekar Djúpríkisins færu á stað til að hæðast að honum, sem reyndar varð.

Stefnuskrá Lýðræðisflokks Arnars Þórs, vill efla Íslenska ríkið til þjónustu við almenning og um leið andæfa uppgangi Djúpríkisins sem vill gera borgarana að þrælum sínum.

Með því að kjósa Lýðræðisflokkinn erum við að velja frelsi og lýðræði, lausn úr fjötrum.

Hinn heimskunni kaþólski erkibiskup Carlo Maria Viganò, fyrrverandi postullegur nuncio í Bandaríkjunum, hefur lýst yfir fullum stuðningi við Donald Trump sem næsta forseta Bandaríkjanna.

Í opnu bréfi ávarpar hann bandaríska kaþólikka og segir: „Það er lífsnauðsynleg fyrir okkur að kjósa Donald Trump sem forseta Bandaríkjanna þann 5. nóvember n. k., annað væri siðferðislega óverjandi. Með því að kjósa Trump sem forseta, munum við fara gegn Djúpríkinu , til verndar komandi kynslóðum, því aðeins Trump mun standa gegn hinu alþjóðlega valdaráni Djúpríkisins. Við sem kristnir menn erum kallaðir til að velja á milli lýðræðis og einræðis, milli frelsis og þrælahalds.“


mbl.is Hefur tröllatrú á Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Guðmundur Örn.

Hér erum við þó sammála.

Ég læt allan áróður gegn Arnari Þór sem vind um eyru þjóta og mun kjósa hann sem einasta valkost eftir sem áður, því maður sér t.a.m. hreinlega hlýjuna á milli þeirra Bjarna og Sigmundar, eða kannski líkt og smokkfisks og kolkrabba hér í drullupollinum?

Jónatan Karlsson, 4.11.2024 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og tólf?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 286
  • Sl. viku: 680
  • Frá upphafi: 7702

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 505
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband