26.3.2025 | 02:04
Palestínumenn snúast gegn Hamas
Sú var tíð að Hamas-maðurinn Mosab Hassan Yousef bjó á Vesturbakkanum. Hann lifði sem prins í hlutverki sínu sem, Sonur Hamas. Fjölskylda hans taldist konungborin meðal Palestínumanna. Afi hans var vinsæll Imam, og faðir hans var einn af stofnendum Hamas samtakanna. Þrátt fyrir þessa háu stöðu sína innan Hamas, gerðist Yousef svikari við Samtökin. Hann varð leyniþjónustumaður fyrir Shin Bet, Leyniþjónustu Ísraels árið 1996 og lék eftir það tveimur skjöldum.
Í 10 ár gaf hann Ísraelsmönnum upplýsingar um margar fyrirhugaðar hryðjuverkaárásir, sem Samtökin hugðust gera á almenning í Ísrael. Hamas grunaði hann aldrei um að leka upplýsingum, en gengu út frá því að Yousef væri að feta í fótspor föður síns sem leiðtogi innan Samtakanna.
Ákvörðun sína um að snúast gegn Hamas útskýrir hann í endurminningum sínum í bókinni, Sonur Hamas, sem gefin hefur verið út á íslensku. Frásögn bókarinnar hefst árið 1996, þegar hinn 18 ára gamli Yousef var handtekinn af Ísraelsku lögreglunni. Hann segir frá því hvernig hann var pyntaður af Ísraelsmönnum í einni skelfilegustu fangelsisstofnun sem hægt er að ímynda sér. Þar var honum haldið föngnum í þrjá mánuði.
Það sem hann varð þola og aðrir palestínskir fangar af hálfu Ísraelsmanna, var samt léttvægt í samanburði við þá meðferð sem þeir fengu af palestínskum samföngum sínum, ef og þegar þeir voru grunaðir um að hafa veitt Ísraelsmönnum einhverjar upplýsingar. Í fangabúðum Ísraelsmanna, dæmdu leiðandi Hamas-menn aðra fanga til dauða og framfylgdu dómunum þar samstundis, án þess að Ísraelsmenn hefðu af því afskipti.
Þetta kom Yousef til að spyrja sjálfan sig: Er Ísrael versti óvinurinn? Eigum við ekki verri óvin, sem eru hættulegri en Ísrael, heitir sá ekki Hamas? Er ég sjálfur ekki í óvinaliði þjóðar minnar?
Önnur ástæða varð einnig til þess að Yousef snérist á sveig með Ísraelsmönnum. Um tíma var hann vistaður í fangaklefa með ísrelskum hermanni, sem fangelsaður hafði verið fyrir að óhlýðnaðist skipun foringja um árás á palestínska uppreisnarmenn. Hermaðurinn var kristinnar trúar, og kvaðst hann elska alla menn, með sama hætti og Jesús Kristur gerir. Í fyrstu fannst Yousef það fáránlegt að nokkur gæti elskað óvini sína. Eðlilegt væri að hata þá. En hann sannfærðist fljótt um að hermaðurinn bæri umhyggju fyrir honum. Öll þessi óumræðilega reynsla sem hann gekk í gegn um, einkum kynnin af kristna hermanninum, varð til þess að hann snérist frá íslam til kristinnar trúar.
Loks þegar hann var látinn laus úr fangavistinni, gerðist hann njósnari Ísraelsmanna. Engan af hans fjölskyldu grunaði hvílík breyting hafði átt sér stað á Yousef. Hann fór að veita innherjaupplýsingar um Hamas til Shin Bet, Leyniþjónustu Ísraels. Hann aðstoðaði þá við handtöku margra Hamas-liða, jafnvel þótt hann hefði andstyggð á aðferðum Ísraelsmanna.
Mosab Hassan Yousef þoldi ekki að gegna þessu tvöfalda hlutverki sínu lengur en í 10 ár. Þá aðstoðuðu Ísraelsmenn hann við að komast frá Vesturbakkanum og til Bandaríkjanna. Nú býr Yousef í Kaliforníu. En draumur hans er að geta einhvern tímann flutt aftur heim.
Síðan hann yfirgaf Vesurbakkan 2004, hefur hann flutt fyrirlestra víðsvegar um heiminn og nú án hvíldar, eftir hryðjuverkaárás Hamas 7. október 2023.
Hann hefur þá talað gegn Samtökunum Hmas, fyrir málstað Ísrael og fjallað um þann rétt sem Gyðingar eiga til landsins. Hann segir: Ég veit að þetta hljómar ótrúlega á þessari stundu í eyrum margra, en ég elska landið, ég elska fólkið mitt, fjölskyldu mína, sem er þarna, og ég sakna þeirra mjög mikið.
Ég ætla ekki að fara í felur, heldur berjast gegn hatrinu. Ég trúi því að það sé rétt, sem ég er að gera, að vara við illsku Íslam, sem getið hefur af sér Hamas og önnur álíka samtök.
Ef það kostar mig lífið, mun dauði minn ekki verða til einskis."
![]() |
Palestínumenn mótmæla Hamas |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.3.): 115
- Sl. sólarhring: 127
- Sl. viku: 146
- Frá upphafi: 9884
Annað
- Innlit í dag: 108
- Innlit sl. viku: 131
- Gestir í dag: 104
- IP-tölur í dag: 102
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning