Leo XIV, nýr páfi

Nýr páfi hefur sest á páfastól. Þessi nýi páfi var eins og hægri hönd Frans páfa. Síðustu árin sá hann meðal annars um að velja nýja biskupa. Öruggt má telja að hann haldi áfram við þá iðju að gjörbreyta kaþólsku kirkjunni í frjálslyndisanda Frans páfa.

Stefna Frans var að koma á einni alheimstrú, sem muni verða til með því að blanda saman ólíkum trúarbrögðum. Frans páfi sagði margar leiðir liggja til Guðs, þ.e.a.s. í gegnum mörg trúarbrögð, ekki aðeins kristindóm, jafnvel þótt Jesús segist vera eini vegurinn, sannleikurinn og lífið.

Frans sagði einnig: “Allir menn eru góðir innst inni,” þótt Jesús segi engan vera góðan nema Guð.

Í sínu nýja hlutverki fóru fyrstu orð hins nýi páfi Leó XIV, í að tala vel um forvera sinn Frans, en hann sagði: „Enn hljóma í eyrum okkar hin veika en alltaf hugrakka rödd Frans páfa sem blessaði okkur.“ „Sameinuð, hönd í hönd með Guði, skulum við halda áfram saman,“ sagði hann við fögnuð mannfjöldans, en hvaða Guði?

“Ef menn eru eitt sinn orðnir upplýstir og hafa smakkað hina himnesku gjöf, fengið hlutdeild í heilögum anda og reynt Guðs góða orð og krafta komandi aldar, en hafa síðan fallið frá, þá er ógerlegt að endurnýja þá til afturhvarfs. Þeir eru að krossfesta Guðs son að nýju og smána hann.” (Hebr. 6:4-6).


mbl.is „Mjög góður maður, mjög hlédrægur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Já þessi tilvitnun passar vel inní aðstæður. Einnig hafði ég ekki veitt athygli þessum orðum Frans sem bendla hann við wók. En síðan á hinn bóginn þá hafa fréttamenn kvartað yfir því að þessi nýi páfi hafi ekki sömu samúð gegn hinseginfólki og sé íhaldssamari á því sviði en Frans. 

Þannig að það á eftir að koma endanlega í ljós síðar hvernig hann verður. Einhver innri barátta á ferðinni og vafalaust margir sem biðja fyrir því að hann hafi kjark að fara á rétta braut.

Góðir eru pistlar þínir mjög oft, takk fyrir.

Ingólfur Sigurðsson, 9.5.2025 kl. 15:42

2 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Þakka þér Ingólfur, athugasemdina. Að sjálfsögðu bið ég fyrir hinum nýja páfa að hann sem hirðir fóðri sauðina á Orði Guðs og brengli því ekki.

Jesús valdi Pétur postula sem fyrsta páfann þrátt fyrir ófullkomleika hans. Um það getum við lesið í Jóhannesarguðspjalli:

Þegar þeir höfðu matast, sagði Jesús við Símon Pétur: Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir? Hann svarar: Já, Drottinn, þú veist, að mér þykir mjög vænt um þig. Jesús segir við hann: FÓÐRA ÞÚ sauði mína. Jesús sagði aftur við hann öðru sinni: Símon Jóhannesson, elskar þú mig? Hann svaraði: Já, Drottinn, þú veist, að mér þykir mög vænt um þig. Jesús segir við hann: VER HIRÐIR sauða minna. Hann segir við hann í þriðja sinn: Símon Jóhannesson, þykir þér mjög vænt um mig? Pétur hryggðist við, að hann skyldi spyrja hann í þriðja sinni: Þykir þér mjög vænt um mig? Hann svaraði: Drottinn, þú veist allt. Þú veist, að mér þykir mjög vænt um þig. Jesús segir við hann: FÓÐRA ÞÚ sauði mína. (Jóh. 21: 15-17).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 9.5.2025 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og tólf?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 47
  • Sl. sólarhring: 47
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 10960

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband