Ásthildur Lóa Þórsdóttir velkomin!

Velkomin inn á Alþingi Íslendinga á ný. Ég trúi því að þú komir tvíefld til leiks og munir koma góðum hlutum til leiðar fyrir þjóð þína.

Þú hefur nú orðið fyrir mjög erfiðri reynslu ofsókna, en ég trúi því að það hafi verið prófraun til að gera þig að hæfari þjóni fólksins og þetta hjálpi þér til að sýna ávalt auðmýkt, en líka visku.

 

 

Páll postuli sagði við Tímóteus, þegar hann hafði sett hann ungann inn í embætti leiðtoga safnaðarins:

“Þess vegna leggjum vér á oss erfiði og þreytum stríð, því að vér höfum fest von vora á lifanda Guði, sem er frelsari allra manna, einkum trúaðra. Bjóð þú þetta og kenn það. Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trúaðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika.

Ver þú, þangað til ég kem, kostgæfin að lesa úr Ritningunni, áminna og kenna. Vanræktu ekki náðargjöfina þína, sem var gefin þér að tilvísan spámanna og með handayfirlagningu öldunganna. Stunda þetta, ver öll í þessu, til þess að framför þín sé öllum augljós.

Haf gát á sjálfri þér og fræðslunni. Ver stöðug við þetta. Þegar þú gjörir það, muntu bæði gjöra sjálfa þig hólpinn og áheyrendur þína.” (1. Tim. 4:10-16).

 


mbl.is Ásthildur Lóa snýr aftur á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Ásama tíma og Ásthildur Lóa Þórsdóttir kemur aftur tvíefld inn á Alþingi gerist það að Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, segir sig úr flokki Vinstri grænna.

Ástæðu ákvörðunar sinnar segir Jódís vera hrossakaupin, þ.e.a.s. spillinguna, sem sé stöðugt í gangi innan allra flokka, undantekningarlaust. Þannig gerast einfaldlega kaupin á Eyrinni.

Þingmenn flokkanna eru leiðitamir og hlíða flokkseigendaklíkum, aftursætisbílstjórum og láta tengsl og vensl stjórna ferðinni í stað þess að fylgja samvisku sinni til að þjóna þjóðinni, sem valdi þá erindreka sína.

Og hún bætir við: Ég leyfi mér að segja að engin stjórnmálasamtök á Íslandi séu undanskilin. Þegar nýir flokkar verða til horfum við bjartsýn fram á nýja og betri tíð en innan ákveðins tíma í þessu andrúmslofti, virðist ónæmiskerfi flokkanna vera of veikt og þessi súra gamla pólitíska veira virðist ná að festa sig í líffærum allra flokka.

Páll postuli er sammála Jódís Skúladóttir. En hann segir: Hið góða, sem ég vil, gjöri ég ekki, en hið vonda, sem ég vil ekki, það gjöri ég. En ef ég gjöri það, sem ég vil ekki, þá er það ekki lengur ég sjálfur, sem framkvæmi það, heldur syndin, sem í mér býr. Þannig reynist mér það þá regla fyrir mig, sem vil gjöra hið góða, að hið illa er mér tamast. Innra með mér hef ég mætur á lögmáli Guðs, en ég sé annað lögmál í limum mínum, sem berst á móti lögmáli hugar míns og hertekur mig undir lögmál syndarinnar í limum mínum. (Róm. 7:19-23).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 26.5.2025 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og átta?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 58
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 181
  • Frá upphafi: 11412

Annað

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 146
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband