10.6.2025 | 19:36
Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks - Misst vitið - Er í fjötrum lyga - En hvað um þig?
Ég trúi því sem ég vilt trúa. Er trú mín leidd af anda sannleikans eða stjórnast hún af anda vitfirrtrar lygi?
Á YouTube-myndbandi flytur nú Breski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Melanie Phillips tölu um lygarnar gegn Ísrael, sem stýra nú orðum og æði flestra leiðtoga Heimsins. (https://www.youtube.com/watch?v=xixp7mV8f-0).
Hún skorar á heimsbyggðina að snúa sér frá þeirri stórhættulegu lygi sem tröllríður flestum fjölmiðlum veraldar. Hún afhjúpar hvernig alþjóðlegir fjölmiðlar, mannúðarsamtök og stjórnmálastofnanir eru samsekir í að dreifa ósannindum um stríðið á Gaza, milli Hamas og Ísrael.
Þess vegna er ofbeldi gegn Gyðingum að aukast jafn og þétt þessa daga á Vesturlöndum. Fyrir fáum dögum var framin í Boulder eldsprengjuárás á mótmælafund hliðhollum Ísrael, og fyrir tveimur vikum var ungt Gyðingapar drepið í Washington D.C.
Um 500 þúsund Gyðingar búa í Frakklandi. En á síðustu mánuðum hafa ofsóknir á hendur þeim aukist svo að margir kjósa nú að hverfa burt þaðan og setjast að í Ísrael.
Phillips spyr þeirrar spurningar, sem fáir þora að horfast í augu við og svara: Hvað ef allur heimurinn trúir lyginni?
Á myndbandinu fjallar Melanie Phillips um það sem kallast fréttir frá Gaza, en er mest megnis tilbúningur þ.e.a.s. lygi. Þessar Gróusögur eru fluttar daglega á fréttamiðlum eins og BBC, New York Times, Sky News, RÚV, mbl.is og sumar koma jafnvel frá alþjóðlegum stofnunum eins og Rauða krossinum, Amnesty International, SÞ og Læknum án landamæra.
Phillips afhjúpar hvernig falsfréttir eru stöðugt sagðar af fjöldamorðum Ísraelshers á Palestínumönnum. Það nýjasta eru morðin sem Hamasliðar fremja á eigin fólki við dreifingarmiðstöð hjálpargagna. Ísraelsmenn eru ákærðir fyrir þau.
Hún segir frá því hvernig Hamas notar erlenda lækna til að dreifa rangfærslum og hvernig stórir fjölmiðlar hafa vísvitandi endaskipti á sannleika og lygi.
Samræmt, skipulegt áróðursstríð er í gangi gegn Ísrael. Ekki er eingöngu við fjölmiðla að sakast, því leiðtogar heimsins virðast nú flestir hafa ákveðið að stofna Gyðingum í hættu hvar sem þeir eru og stuðla að eyðingu ríkis Ísraels.
Vegna þessarar stefnu eru hryðjuverkamenn um víða veröld að styrkjast, þetta flýtir einnig mjög fyrir hnignun Vestrænnar siðmenningar.
Næst verða það börnin okkar.
Jafnvel á Íslandi er að finna ótrúlegan lygaáróður gegn Gyðingum og Ísrael. Hér heima setur, Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks, fram forkastanlegar lygar um Ísrael, í nýlegri færslu á Facebook. Færslan birtist einnig í Mannlíf. Frásögn hans er ekki einu sinni til þess fallin að Gyðinghatarar trúi henni, hvað þá aðrir.
En í þessum skrifum fordæmir Kristinn harðlega stefnu Ísraelsríkis í garð Palestínumanna. Hann heldur því fram að meginhluti Ísraelmanna séu öfgamenn sem vilji útrýma Palestínumönnum.
Hér er hlutunum snúið á hvolf eins og frekast unnt, þar sem opinber stefna Hamas er: Öllum Gyðingum skal útrýmt í þjóðarmorði. Út á þetta gengur slagorð þeirra: Free Palestine og "From the river to the sea".
Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður þó illska þess opinber á dómþinginu. Sá sem grefur gröf, fellur í hana. (Orðskv. 26:26-27).
Ísraelar hafa misst vitið," skrifar Kristinn.
Hann vísar þar til einhvers sem hann kallar nýja skoðunarkönnun, sem hafi verið gerð á vegum Penn State-háskóla í Bandaríkjunum og sýni að 82% Gyðinga í Ísrael styðji algera útrýmingu Palestínumanna á Gaza, lifandi eða dauðum. Um 47% styðji jafnframt þjóðarmorð með beinni slátrun allra íbúa svæðisins.
Allur heimurinn veit hins vegar að þjóðarmorð Hamas á Gyðingum hófst 7. október 2023.
![]() |
Guardiola: Næst verða þetta börnin okkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 2
- Sl. sólarhring: 71
- Sl. viku: 195
- Frá upphafi: 11668
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 160
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessaður Guðmundur Örn.
Ég var að klára að hlusta á þetta vídeó, þar sem einfaldlega lygarnar voru afhjúpaðar eins og þú segir.
Í morgun tók það sem er skrifað í skýin yfir hjá mér, ég var að spá í allt aðra hluti, og þá dúkkaði upp hjá mér á youtube lista vídeó frá ungum dreng, það er miðað við mig, sem heldur úti youtube-rás sem heitir travelingisrael.com, https://www.youtube.com/@Travelingisraelinfo
Og ég skoðaði nokkur vídeó hjá honum, það er hlustaði á hann færa rök fyrir sínu máli. Þessi ungi drengur er rökfastur, og þar sem ég hef sannprófað hann, þá fer hann með rétt mál. Í einu vídeóinu sýndi hann dróna mynd þar sem Hamas liðar höfðu safnað saman hóp ungra barna, við hliðina á skotpalli á háhýsi, þar sem þeir skutu eldflaugum að Ísrael. Og hann spurði hinnar klassísku spurningar, hvor ber ábyrgðina á dauða þessara barna, sá sem safnar þeim saman með byssu í hönd til að nota þau sem mannlega skyldi, eða sá sem svarar eldflaugaárásinni og tortímir skotpallinum?? Það er allavega þekkt staðreyndi í stríði að þjóðir svara árásum yfir landamæri, reyna að koma í veg fyrir þær með því að tortíma þeim árásartækjum sem nýtt eru til árásanna.
En þetta er ekki það sem ég ætlaði að minnast á, mér lék forvitni á hvað hann hefði að segja um meintar árásir á dreifingarstöðvar matvæla, dreifingastöðvar sem voru undir vernd Ísraelshers, og voru hugsaðar af hernum til að koma í veg fyrir yfirtöku Hamas á hjálpargögnum. Því mín heilbrigðaskynsemi sagði mér að slíkt væri mjög skrýtið, að þegar kerfið er eins og þú vilt hafa það, þá skýtur þú á fólkið sem leitar sér hjálpar. Meikar engan sens og allt skynsamt fólk hlýtur að sjá.
Melanie bendir á sömu rökvillu og færir rök fyrir sínu máli. Vísar í drónamyndir og annað sem afsanna þennan falska fréttaflutning vestrænna fjölmiðla Munum að allt er vopn í stríði, og ef það þjónar tilgangi Hamas að drepa sitt eigið fólk, þá gera samtökin það hiklaust, en það afsakar ekki þá fjölmiðla sem ráðast gegn rökhugsun og heilbrigða skynsemi með því að taka undir lygar og áróður.
Hér fyrir neðan ætla ég að reyna að peista mynd af vopnuðum Hamasliðum að skjóta á sitt eigið fólk. Mynd sem segir allt sem segja þarf, og hún meikar sens, það eru hagsmunir Hamas að svelta sitt eigið fólk, núna þegar heljartökum samtakanna á dreifingu matvæla eru liðin tíð.
Hins vegar Guðmundur þá liggur engin ógn í mönnum eins og Kristni Hrafni, það eru meinstrím fjölmiðlar sem ljúga og dreifa falsfréttum Hamas. Mogginn hefur sleppt því í dag, en Rúv endurtók lygar Hamas í dag, vitnar í talsmann almannavarnar Gasa, a la áróðursdeild Hamas;
"Ísraelsher drap yfir 30 við dreifingarstöð á Gaza", og greyið hann Hallgrimur er borinn fyrir fréttinni. Þessi þarna sem er nýbúinn að síendurtaka fréttina um að "Sameinuðu þjóðirnar segja að 14 þúsund börn á Gaza deyi á næstu 48 klukkustundum berist ekki næg hjálpargögn þangað í tæka tíð.". Og þegar innan við 5 börn dóu, líklegast úr hrörnunarsjúkdómum, því allir voru pattaralegir í kringum þau þá spurði Jóhanna Vigdís Hallgrím greyið um biðina á dauða hinna 13.998 barna, þá sagði Hallgrímur að þau myndu örugglega deyja ef engin hjálpargögn bærust. Jafnvel heimskur maður lýgur ekki svona, en Hallgrímur greyið veður ekki í vitinu.
En hann stjórnar erlendum fréttum á Rúv, ekki Kristinn.
Þjóðarmorð Hamas á sinni eigin þjóð hófst 7. október 2023, en tilraunir Íslamista til að útrýma gyðingum, kristnum auk annarra trúarhópa í Mið-Austur löndum hófst miklu fyrr.
Með miklum stuðningi vestrænna ríkja.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 11.6.2025 kl. 18:09
Þökk sé þér Ómar Geirsson, fyrir þínar góðu athugasemdir.
Ég tel nokkuð víst að við lifum á tímum, sem við getum kallað hina SÍÐUSTU. Sjá má, að spádómur Ezekíels, er að ganga í uppfyllingu. En hann fékk Orð frá Guði, svo hljóðandi:
Fyrir því spá þú, mannsson, og seg við Góg: Svo segir Drottinn Guð: Munt þú ekki á þeim degi, er lýður minn Ísrael býr óhultur, leggja af stað og koma frá stöðvum þínum, lengst úr norðri, þú og margar þjóðir með þér, allir ríðandi hestum, mikill liðssafnaður, fjölmennur her, og fara í móti lýð mínum Ísrael eins og óveðursský til þess að hylja landið?
Á hinum síðustu dögum mun ég leiða þig móti landi mínu, til þess að þjóðirnar læri að þekkja mig, þegar ég auglýsi heilagleik minn á þér, Góg, fyrir augum þeirra.
Svo segir Drottinn Guð: Ert þú sá, er ég talaði um í fyrri daga fyrir munn þjóna minna, spámanna Ísraels, er spáðu í þá daga árum saman, að ég mundi leiða þig móti þeim? En þann dag, daginn sem Góg fer móti Ísraelslandi, segir Drottinn Guð mun reiðin blossa í nösum mér. (Ez.38:14-18).
Guðmundur Örn Ragnarsson, 11.6.2025 kl. 20:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning