Arnar þór Jónsson - já hann!

Í pistil á blog.is, gerði hann orð séra Sigurbjörns Einarssonar biskups, að sínum, er hann spurði:

“Hvað skortir íslensku þjóðina mest? Þú veist það svo vel. Það er meira af heilskyggni, fleiri slíkir menn. Viltu ekki að þínum hluta bæta úr þeim skorti?”

Við, ég og þú, getum bætt úr þeim skoti með því að velja í stöðu Forseta Íslands slíkan mann. Mann sem felur Jesú Kristi líf þjóðar sinnar. Arnar Þór Jónsson er slíkur, virðist sérhannaður af Guði skapara sínum, til að gegna embætti Forseta.

Hann treystir handleiðslu Guðs í því sem hann gerir. Enda hefur Guð gefið honum innsæi og djúpa þekkingu á þörfum Íslensku þjóðarinnar, þeirrar sem hann ann.

Þess vegna móttekur Arnar Þór orðin þessi frá Guði sínum:

“Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður (Íslendingar) segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.

Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og ég mun bænheyra yður. Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta.” (Jer. 29:11-13).

Gleðilega páska, því Jesús er upp risinn!


mbl.is Mun greina frá ákvörðun sinni á þriðjudaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dánaraðstoð fer nú fram við Íslensku þjóðina

Dánaraðstoð fer nú fram við Íslensku þjóðina, af henni óforspurðri.

Þrátt fyrir þjáningar sem hún nú gengur í gegn um, vill hún ekki deyja og þarf ekki að deyja, eins og svo margir ætla henni nú.

Þeim sem hún treysti og fól leiðsögn, keppast nú við, hver sem betur getur, að útrýma þjóðinni, jafnvel margir þeir sem nú eru að bjóða sig fram til forseta lýðveldisins eru óvinir þess.

Guðmundur Böðvarsson orti:

Eitt verð ég að segja þér áður en ég dey

enda skaltu börnum þínum kenna fræði mín,

sögðu mér það álfarnir í Suðurey,

sögðu mér það dvergarnir í Norðurey,

sögðu mér það gullinmura og gleym-mér-ei

og gleymdu því ei

að hefnist þeim er svíkur sína huldumey,

honum verður erfiður dauðinn.


mbl.is Segja baráttu Baldurs mun faglegri en Höllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 600
  • Frá upphafi: 3418

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 496
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband