Við kjósendur erum færir um að greina réttlæti frá ranglæti

Jón Steinar Guðlaugsson fjallar um stigagjöf í nýaflokinni Eruovision sönglagakeppni 11. maí s. l. Jón Steinar hefur sýnt fram á að ef almenningur í þátttökulöndunum, hefði ráðið úrslitum við kosningu sigurlagsins hefði annað lag borið sigur úr bítum.

Það voru hins vegar atkvæði dómnefnda aðildarlandanna sem réðu því hvaða lag vann. Þessar dómnefndir höfðu verið valdar af valdaelítum landanna.

Nú veljum við, almenningur á Íslandi, okkur nýjan forseta, án þess að valdaelítan geti beinlínis stjórnað atkvæðagreiðslunni. En hún reynir samt allt hvað af tekur að stjórn því hvernig við greiðum atkvæði.

Valdaelítan vill ekki réttlátan forseta, sem ber hag þjóðarinnar fyrir brjósti. Hún vill forseta sem tryggir áframhaldandi rangláta stjórn þeirra.

Takið eftir hvernig skoðanakannanir eru framkvæmdar, þeim er stjórnað af elítunni.

Takið eftir hvernig, og um hvaða frambjóðendur, er helst fjallað af meginstraumsfjölmiðlunum, einnig því er stjórnað af elítunni.

En ég trúi því að þjóðin láti ekki valdaelítuna afvegaleiða sig til að kjósa ranglátan frambjóðanda í embætti Forseta Íslands.

“Andstyggð réttlátra er sá sem ranglæti fremur

og andstyggð ranglátra sá sem breytir ráðvandlega. (Ok. 29:27).”

 


mbl.is Arnar Þór hvergi nærri hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland, Hera Björk, í síðasta sæti. - Samt sannkallaður sigurvegari.

Vegna þess, að Hera Björk Þórhallsdóttir ÁKVAÐ fyrir Íslands hönd að við skyldum vera þátttakendur í Euróvision í ár, er hún sigurvegari.

Með ákvörðun sinni kom hún því til leiðar að Íslendingar gátu greitt lagi Ísraels verðskulduð 8 stig, og verið Ísrael þannig blessun á erfiðum tíma þjóðarinnar.

Hera Björk hafði sjálf tjáð sig í viðtali við Ísraelskan miðil í apríl, að hún væri hrifin af framlagi þeirra, laginu Hurricane sem var í flutningi Eden Golan.

“Jesús sagði við þá:

Sannlega segi ég yður: Þegar allt er orðið endurfætt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu, munuð þér, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.(Ekki bara 8 stig).

Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá margfalt aftur og öðlast eilíft líf.

En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.” (Matt. 19:28-30).


mbl.is Ísland lenti í síðasta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá ekki komið tækifæri aftur fyrir Ísland, fyrir hetjuna okkar Heru Björk að hlaupa í skarðið?

Er ekki tilvalið að fá Ísland til að leysa Holland af í kvöld?

Hera Björk Þórhallsdóttir stóð sig frábærlega í undankeppni Euróvision á þriðjudag. Þótti mér hennar flutningur þá sá langbesti og skil ekki hví hún var ekki valin til að vera með á lokakvöldinu.

Þótt framlag hennar komi ekki til góða fyrir Ísland, var það til blessunar fyrir Ísrael. Hera Björk hafði þá djörfung að lýsa skoðun sinni á framlagi Ísraels þegar hún var innt eftir henni af Ísraelska Eurovision-miðlinum Euromix 3. apríl s. l., enda þótt henni mætti vera ljóst að RÉTT-TRÚNAÐARLIÐIÐ, GÓÐA-FÓLKIÐ, hérna heima tæki hreinskilni hennar óstyngt upp, sem og kom á daginn þegar þetta GÓÐA-FÓLK hélt sérstaka andstöðutónleikar gegn Heru Björk og Ísrael.

Hún sagði nákvæmlega það sem henni finnst um lag Ísraelsmanna í viðtalinu, að hún væri hrifin af framlagi þeirra, laginu Hurricane sem er í flutningi Eden Golan.

Hera Björk notaði þá tækifærið til að þakka Ísraelskum Euróvision stuðningsmönnum sínum stuðninginn, um leið og hún óskaði þeim velfarnaðar.

Með þessu hefur Hera Björk blessað Ísrael, (þó ekki endilega allt sem þeir gera), en Guð Ísraels hefur lofað að blessa þá sem blessa Ísrael. Sú blessun kemur til baka til Heru Bjarkar.


mbl.is Hollandi vísað úr Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísrael! Við stöndum með þér á laugardag. Guð þinn yfirgefur þig ekki.

Það mikil írónía fólgin í því að mótmælendur í Svíþjóð, halda því fram að Ísrael sé að fremja þjóðarmorð, þegar þeir svara árásaum.

Árás Hamas á Ísrael var enn ein tilraunin til þjóðarmorðs á Gyðingum. Eins og kunnugt er hefur verið reynt að útrýma þeim í þúsundir ára. Nú hefur nýtt vopn verið lagt í hendur Gyðingahataranna, áhangenda Antikrists, við “endanlega lausn gyðingavandmálsins,” (“Die Endlösung der Judenfrage”), það er að fá heiminn til að trú þeim öfugmælum, að Ísrael fremji þjóðarmorð.

"Og Orð Jehóva kom til Jeremía: Hefir þú ekki tekið eftir, hvað þessi lýður talar, er hann segir: Báðum ættkvíslunum, sem Jehóva útvaldi, hefir Guð Hafnað! Og að þeir segja fyrirlitlega um lýð minn (Ísrael), að hann sé ekki þjóð framar í þeirra augum?

Svo segir Jehóva: Ég, sem hefi gjört sáttmála við dag og nótt og sett himni og jörðu föst lög, skyldi ég hafna niðjum Jakobs og Davíðs, þjóns míns? Skyldi ég leiða hjá mér að velja af niðjum hans DROTTNARA yfir ætt Abrahams, Ísaks og Jakobs? Nei, ég mun snúa við högum þeirra og miskunna þeim. (Jer. 33:23-26)."

Þegar okkur verður ljóst, hvílíkt undur það er hvernig Ísraelsmenn hafa staðist allar ofsóknir í hundruð ára, getum við glaðst yfir trúfesti Guðs við Sáttmálaþjóð sína, Ísrael.

Þess vegna erum við líka viss um að Guð mun einnig vera trúfastur við okkur, sem græddir erum við Ísrael, fyrir trú okkar á Messías Ísraels, Jesú Krist.


mbl.is Svíar mótmæla og áhorfendur baula á Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsti Forseti Íslands getur breytt bölvuninni í blessun!

Í gærkvöld átti sér stað sá hryggilegi atburður að haldnir voru andstöðutónleikar í Háskólabíói gegn Ísrael, hinni útvöldu þjóð Guðs, og um leið gegn fulltrúa Íslands í Euróvision, Heru Björk Þórhallsdóttur.

Þátttakendur samkomunnar í Háskólabíói kölluðu þar yfir sig bölvun Guðs og um leið yfir land sitt og þjóð, Ísland.

Í haturssamstöðu þessa “GÓÐA FÓLKS” gegn Gyðingum og Heru, stóð forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson, en það margfaldaði bölvunaráhrifin.

Hera stóð sig frábærlega.

Þótti mér hennar flutningur sá langbesti. Þótt framlag hennar kæmi ekki til góða fyrir Ísland, var það til blessunar fyrir Ísrael. Og mun Ísraels Guð launa henni eins og Hann hefur heitið.


mbl.is Guðni mætti á samstöðutónleika á Eurovison-kvöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf Kirkju Krists er háð neyslu Brauðs Lífsins. Verður til fæða í Húsi Guðs?

Nú hafa prestar og sóknarnefndir kirkna kosið sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur sem Biskup Íslands, konu sem vill fylgja Tíðarandanum og almenningsálitinu, fremur en fylgja Jesú Kristi og Heilögum Anda Guðs.

Guð krefst þess af þeim sem fylgja Kristi að þeir lifi í heilagleika og auðmýkt, það minnist sr. Guðrún Karls ekki á.

Henni hefur verið hælt fyrir duggnað sinn í ýmiskonar félagsþjónustu, en biskupsstarfið er fyrst og fremst hirðisstarf. Það á að snúast um að hald hjörðinni á lífi. Og henni verður einungis haldið á lífi með því að hún sé stöðugt fóðruð á andlegri fæðu, þeirri sem er að finna í Orð Guðs, Biblíunni. Á þetta minnist hinn nýi biskup ekki.

Án þess að heyra stöðugt Orð Guðs, deyja sauðirnir.

“Jesús segir við hann í þriðja sinn: Símon Jóhannesson, elskar þú mig? Pétur hryggðist við, að hann skyldi spyrja hann þriðja sinni: Elskar þú mig? Hann svaraði: Drottinn, þú veist allt. Þú veist, að ég elska þig. Jesús segir við hann: Fóðra þú sauði mína.” (Jóh. 21:17).


mbl.is Vill hafa ungan ráðgjafa sér við hlið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flemtur kom á Pétur sem aldrei áður hafði upplifað slíka veiði

Jesús sagði við Símon:

Legg þú út á djúpið, og leggið net yðar til fiskjar.

Símon svaraði: Meistari, vér höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið, en fyrst þú segir það, skal ég leggja netin.

Nú gjörðu þeir svo, og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska, en net þeirra tóku að rifna. Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana, svo að nær voru sokknir.

Þegar Símon Pétur sá þetta, féll hann fyrir kné Jesú og sagði: Far þú frá mér, Herra, því að ég er syndugur maður.

En felmtur kom á hann og alla þá, sem með honum voru, vegna fiskaflans, er þeir höfðu fengið. Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar.

Jesús sagði þá við Símon: Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða. Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu Honum. (Lúk. 5:4-11).


mbl.is „Ég hef aldrei áður upplifað slíka veiði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biblían er í mínu hjarta og huga besta bók sem til er. Hún er Orð Guðs.

Hver er tilgangur Morgunblaðsins með því að gera það að frétt að skoski leikarinn Brian Cox, sem í myrkri gengur, segi að Biblían sé í hans huga ein versta bók sem til er?

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær, að Biblían er Orð Guðs, Orð lífsins, Ljós heimsins.

Jóhannesarguðspjall hefst á þessum Orðum: “Í upphafi var Orðið, og Orðið var hjá Guði, og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir urðu fyrir Hann, án Hans varð ekki neitt, sem til er. Í Honum var líf, og lífið var ljós mannanna. Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið tók ekki á móti því. … En öllum þeim, sem tóku við Honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn Hans (Jesú). Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði getnir. Og Orðið varð hold, Hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð Hans, dýrð, sem sonurinn eingetni á frá föðurnum.”

Í Jóhannesarguðspjalli 8. kafla segir Jesús: ”Ef þér eruð stöðugir í Orði mínu, eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa.”


mbl.is „Biblían er í mínum huga ein versta bók sem til er“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 71
  • Sl. viku: 594
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 491
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband