Gísli B. Arnkelsson fyrrverandi kristniboði og kennari lést 1. apríl, 91 árs að aldri. Blessuð sé minning hans.
Allt líf mitt hef ég átt þess kost að fylgst með Gísla og borið mikla virðingu fyrir honum sem helgum manni, vegna þess hve gefinn Guði hann var. Köllun hans var að boða fagnaðarerindið á vegum Kristniboðssambands Íslands til þjóða sem ekki hafa heyrt fagnaðarerindið um Frelsarann Jesú Krist.
Hann starfaði ásamt fjölskyldu sinni sem kristniboði í Konsó í Eþíópíu á árunum 1961 1972, þar sem starf hans færði líf fjölda fólks úr myrkri og inn í Ljósið sem skín frá Frelsaranum Jesú Kristi.
Árið 2015 átti ég þess kost að eiga viðtal við hjón frá Konsó í Eþíópíu, á Sjónvarpsstöðinni OMEGA, en þau eignuðust nýtt líf vegna Íslenska Kristniboðsins. Þau búa nú á Íslandi.
Ekki kynntist ég Gísla mikið persónulega, en einhvern veginn var ég alltaf að rekast á hann á lífsleiðinni. Frá árinu 1953-1958 var ég barn að aldri nemandi í Melaskóla. Hann var þá þar kennari árin 1955-1959. Ég minnist hans þaðan. Á níunda áratugnum leysti ég sóknarprestinn af á Seltjarnarnesi í tvígang, þá var Gísli kennari við Mýrarhúsaskólann. Við hittumst þá m.a. á Litlu jólum skólabarnanna þegar þau heimsóttu kirkjuna.
Fjölskyldu Gísla B. Arnkelssonar votta ég samúð mína. Útför hans fer fram frá Neskirkju mánudaginn 15. apríl kl. 13.
Andlát: Gísli B. Arnkelsson | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. apríl 2024
Um bloggið
Guðmundur Örn Ragnarsson
Nýjustu færslur
- Við kjósendur erum færir um að greina réttlæti frá ranglæti
- Ísland, Hera Björk, í síðasta sæti. - Samt sannkallaður sigur...
- Er þá ekki komið tækifæri aftur fyrir Ísland, fyrir hetjuna o...
- Til hamingju Ísrael! Við stöndum með þér á laugardag. Guð þin...
- Næsti Forseti Íslands getur breytt bölvuninni í blessun!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.5.): 4
- Sl. sólarhring: 53
- Sl. viku: 598
- Frá upphafi: 3416
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 494
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar