Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir álítur Katrínu Jakobsdóttur óhæfa til að gegna embætti Forseta Íslands.

Föstudaginn 1. mars s. l. skrifar Steinunn Ólína grein á Eyjunni, Fastir pennar, í DV. Hún kallaði greinina, Kirkjan okkar Ísland: Hún segir:

“Er ekki landið okkar, okkar eina kirkja, sem við gætum sammælst um að elska og ættum að hlúa að í hvívetna? Ég legg til að við áköllum fossa, firði, fjöll, dali, vötn, lífríki og auðæfi þess lands. Slík tilbeiðsla getur í það minnsta engan skaðað.”

Í Rómverjabréfinu 1. kafla versi 25. stendur:

"Þeir hafa skipt á SANNLEIKA Guðs og lyginni og göfgað og dýrkað hið skapaða í stað Skaparans, Hans sem er blessaður að eilífu. Amen."

Viljum við fá konu eins og Ólínu sem trúir á og ákallar stokka og steina, sem Forseta Íslands?

Eða þá Katrínu Jakobsdóttur sem stöðugt hefur farið gegn Þjóðinni frá því hún varð ráðherra í Jóhönnustjórninni.

Þær hafa báðar með hátterni sínu skaðað Þjóðina. Því þær eru áhrifavaldar. Þessum konum og fleiri, sem eru að bjóða sig fram til embættis Forseta Íslands, hefur Guð gefið mikla hæfileikar, en allar hafa þær misnotað þá.

Hverju má búast við af þeim á Forsetastóli?

Við þurfum hæfileikaríkan Guðs mann í embætti Forseta Íslands.

Arnar Þór Jónsson er slíkur maður, sá eini sem í framboði er.

 


mbl.is Steinunn Ólína hjólar í Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Vel mælt Guðmundur Örn, Arnar Þór Jónsson er sá eini af öllum þeim sem bjóða sig fram sem vert er að mæla með.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.4.2024 kl. 20:47

2 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Tómas Ibsen Halldórsson, já það er merkilegt, að Guð gefur okkur aðeins kost á einum frambjóðanda sem Honum fellur í geð, Arnar Þór Jónsson.

Þrjár hæfileikamiklu konur hafa gegnt mikilvægum ráðherraembættum fyrir Þjóðina á undanförnum árum, Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.

Þær hafa allar brugðist og valdið Þjóðinni miklum skaða, hagað sér eins og þær væru fulltrúar erlends peningavalds, sem gefið hefur þeim skipanir um að mergsjúga Íslendinga af öllum gæðum og steypa í glötun.

Í óþökk okkar hafa þær jafnvel leitt okkur í stríð gegn Rússum.

Svo virðist vera að andi Djöfulsins nái tökum á flestum konum sem komast til áhrifa. Enda segir Páll postuli þetta um konuna:

Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum, heldur á hún að vera kyrrlát. Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva. Adam lét ekki tælast, heldur lét konan tælast og gjörðist brotleg. (1. Tím. 2:12-14).

Eins og Eva, leiddi mannkynið í glötun í umboði höggormsins, vilja nú konur hér einnig taka yfir embætti Forseta Íslands til að leiða okkur áfram glötunarbrautina.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 25.4.2024 kl. 07:58

3 identicon

Varla er það að tilbiðja stokka og steina að bera virðingu fyrir náttúrunni. Hún er jú það sem við lifum á, auðlindir í hafi, mikil ódýr orka og a.m.k. 70% túrisma kemur til Íslands vegna náttúrunnar. 

Arnar (IP-tala skráð) 25.4.2024 kl. 08:00

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ber virðingu fyrir því sem guðs er og náttúrinni sem hennar er,líkist svari Krists um rómverska mynt,sem lesa má um í Gamla Testamentinu og veit að Guðmundur kann utanbókar en ég man ekki.

Helga Kristjánsdóttir, 4.5.2024 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og þremur?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 43
  • Sl. viku: 244
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 160
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband